Sigurborg Kr. Hannesdóttir

 

 

Sigurborg Kr. Hannesdóttir lauk, árið 2008, kennaraþjálfun hjá Gabrielle Roth, sem þróaði 5Rytmana.  Hún er eini 5Rytma kennarinn hér á landi.   

 

Hún kynntist 5Rytmunum árið 1999 og hefur sótt námskeið víða erlendis, hjá fjölmörgum kennurum.  Einnig hefur hún skipulagt námskeið hér á landi frá árinu 2000, með Alain Allard.

 

Til að komast að í kennaraþjálfun þarf að hafa dansað að lágmarki 500 stundir með kennara og hafa sótt ýmis sértæk námskeið. 

 

Sigurborg er jafnframt Kripalu jógakennari og hefur réttindi í Phoenix Rising jógaþerapíu. 

 

Einnig hefur hún sótt mörg námskeið hjá Spirit Horse Nomadic Circle í Wales, þar sem unnið er m.a. með ritúal og sagnalist.  Í frístundum fæst hún við að syngja og segja sögur.

 

Sigurborg hefur yfir tuttugu ára reynslu af kennslu í skólum og á námskeiðum. 

 

Hún starfar nú sem ráðgjafi, er búsett í Grundarfirði á Snæfellsnesi, en kennir einnig á höfuðborgarsvæðinu. 

 

 

ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 Ildi