Tímar og námskeið

 

Boðið er upp á tíma og námskeið bæði á höfuðborgarsvæðinu og í Grundarfirði. 

 

Hér má sjá dagskrána, en hér fyrir neðan er sagt nánar frá hverju námskeiði fyrir sig.

 

 

ÖLDUR (WAVES)
Opnir tímar þar sem dansað er með leiðsögn, í gegnum öldu, þ.e. alla rytmana í þessari röð; flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð.  Hentar jafnt þeim sem hafa dansað áður, til að hleypa dansaranum út reglulega og þeim sem eru að prófa í fyrsta sinn.  Waves eru fyrsta „stigið“ í 5Rytmunum, síðan tekur við Heartbeat þar sem unnið er með tilfinningar, þá Cycles, fyrir lífsskeiðin og loks Mirrors, þar sem hrist er upp í egóinu. 

 

SWEAT YOUR PRAYERS
Dans án leiðsagnar.  Músíkin fylgir Rytmunum og frjálsi dansinn ræður för.

 

DANS Á SUMARSÓLSTÖÐUM
Sunnudaginn 20. júní á Dalsá í Mosfellsdal kl. 15.00.
Á sumarsólstöðum þegar dagur er lengstur og nóttin styst og gjafir jarðar í fullum blóma, dönsum við 5Rytmana og höldum ritúal til heiðurs jarðargyðjunni og birtunni.   Þetta eru tímamótin, þröskuldurinn.  Við njótum sumarblómans til hins ítrasta, áður en dregur úr birtu og krafti og við tekur haust og síðan vetur, þar sem við förum í  hýði og nærumst á vetrarforðanum.
Dalsá er einstakur staður, heimili og helgistaður Jóhönnu B. Magnúsdóttur.  Við dönsum við opinn eld í skjóli trjáa, heyrum nið árinnar, finnum kraft jarðar undir fótum og vind á vanga.
Á eftir njótum við veitinga sem allir þátttakendur leggja með sér á sameiginlegt borð.

 

DANSBÚÐIR UM VERSLUNARMANNAHELGI / DANCE CAMPS IN AUGUST
30. júlí – 1. ágúst, Breiðabliki, Snæfellsnesi
Dans,  kvöldvaka, sögur og samvera frá föstudegi til sunnudags.

Upplýsingar á íslensku hér.

INFORMATION IN ENGLISH HERE
 

RÁÐLAGÐUR DAGSKAMMTUR AF DANSI

Hálfs- til heilsdags námskeið, kennt víða um land.
Í gegnum 5Rytma® dans er opnað fyrir orkuna í líkamanum og dansarinn sem býr í hverjum og einum fær útrás.  Rytmarnir fimm, flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð, mynda öldu þegar dansað er í gegnum þá í þessari röð (Waves).  Með því að fylgja einföldum leiðbeiningum kynnist þú hverjum rytma, opnar, losar um og hreyfir við.  Þú gefur þér leyfi til að kynnast nýjum hliðum á sjálfri/sjálfum þér.  Yfirskrift námskeiðsins vísar til þess að hægt er að dansa sig inn í betri heilsu, á hverjum degi.

 

DANS FYRIR LÍFIÐ

Ýmist kennt sem hálfs dags námskeið eða lengra.
Lífið er dans og í dansinum erum við lifandi.  Þegar lífið kallar eru oft fyrstu viðbrögðin okkar þau að fara í vörn eða reyna að koma á það böndum.  Í 5Rytma® dansinum uppgötvum við að við getum flætt með lífinu, opin, heil og skapandi.  Í gegnum dansinn upplifum við traust á lífinu, hvernig við segjum já eða nei og meinum það, sleppum algjörlega takinu af því sem ekki er í okkar valdi að stjórna, svífum á vængjum gleðinnar og finnum sátt og kyrrð.  Því aðeins þú getur dansað dansinn þinn og lifað lífinu þínu.

 

ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 Ildi