Jóga

Orðið jóga þýðir eining og í jóga tengjum við líkama, huga og sál og finnum tilfinningalegt jafnvægi.
Í erli og hraða nútímans verður æ mikilvægara að geta staldrað við og leitað innri kyrrðar.
Jóga er öflug leið til að leita slíks jafnvægis og bæta lífsgæði sín.
Í gegnum jóga er hægt að læra að þekkja sjálfa(n) sig og líkama sinn betur. Það stuðlar að aukinni sjálfsvirðingu og hjálpar okkur að hlúa betur að heilsu okkar og líðan.
Kripalu jóga tilheyrir svokölluðu Hatha jóga, sem eru líkamsstöður og teygjur. Auk þess er unnið með öndun og slökun.
Sem dæmi um árangur má nefna dýpri öndun, aukinn liðleika og minni streitu, betri svefn og betri almenna líðan.
Haldin eru jóganámskeið í Grundarfirði á haust- og vorönn.
Við erum líka á Facebook, "Jóga í Grundarfirði" - vertu velkomin(n) í hópinn.
VORÖNN 2010
Ástundun kl. 18 - 19.15, mánudaga og miðvikudaga, í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Athugið að af óviðráðanlegum orsökum er ekki kennt mánudagana 19. apríl og 3. maí.
Sjá nánar hér.